Frítími ungmenna í Hafnarfirði - Höldum Hamrinum opnum!

Athugasemdir

#2

Ungmennin mín nýta Hamarinn og hann á að vera opinn!

Auður Finnbogadóttir (Reykjavík , 2023-07-04)

#11

Ungmenni þurfa stað til að eiga fyrir sig

Unnur Henrysdottir (Hafnarfjordur , 2023-07-04)

#14

að þvi að ég elska hamarinn

Dagmar Hákonardóttir (hafbarfjörður , 2023-07-04)

#26

Hamarinn, eins og hann er í dag, hefur jákvæð áhrif á samfélagið og ungmenni Hafnarfjarðar

Lára Scott (Hafnarfjörður , 2023-07-04)

#29

eftir covid - stend ég með öllum ungmennum í Hafnarfirði, nýjum og gömlum. Hamarinn skiptir sköpun !!

Borghildur Sturludottir (Hafnarfjörður, 2023-07-04)

#32

Ég vil að opnunartími Hamarsins haldist óbreyttur!

Harpa Rut Svansdóttir (Hafnarfjörður, 2023-07-04)

#33

Mjög mikilvægt og flott forvarnarstarf sem er unnið þarna!

Margrét Rebekka Valgarðsdóttir (Rvk, 2023-07-04)

#34

Ég er algerlega sammála Melkorku Össu - Frábært starf unnið í Hamrinum

Árni Guðmundsson (Garðabær , 2023-07-04)

#37

Ungt fólk skiptir máli. Hlúum vel að því hvort sem þau eru í framhaldsnámi eða ekki.

Björg Sveinsdóttir (Hafnarfjörður , 2023-07-05)

#40

Starfið í hamrinum er gríðarlega mikilvægt

Bjarni Dagur Karlsson (Breiðholt, 2023-07-05)

#42

I don't want them to close it

Ransel Abreu (Reikiavik, 2023-07-05)

#43

Þegar harðnar hefur á dalnum í fjárhag sveitarfélaga og ríkis í gegnum áratugina hefur starfsemi fyrir börn, unglinga og ungt fólk alla jafna verið ofarlega í forgangsröðun þeirrar starfsemi sem lendir undir hnífnum. HIns vegar hafa dæmin sagt, aftur og ítrekað, að það kemur niður á samfélögum síðar meir. Oft er vitnað til Finna og þeirra leið út úr efnhagskreppu á tíunda áratugnum. Það sem þeir hefðu viljað gera eftir á að hyggja var að standa vörð um starf fyrir ungt fólk. Lærum af eigin mistökum og annarra.

Eygló Rúnarsdóttir (Seltjarnarnes, 2023-07-05)

#46

Fjölbreytt val á hvernig nýta skal frítímann er mikilvægt fyrir ungmenni á öllum aldri. Sem fyrrum starfsmaður Hamarsins geri ég mér grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem Hamarinn gegnir í félagsuppeldi og mótun lýðræðislegrar þátttöku ungmenna með því að vera öruggt rými til að ræða mismunandi skoðanir, gera mistök og öðlast sjálfsöryggi. Það að draga saman seglin núna í stað þess að efla forvarnir er að mínu mati mistök sem kemur til með að kosta bæinn mun meira í stærra samhengi en sá kostnaður sem fylgir því að styrkja starfið enn frekar.

Sandra Karlsdóttir (Hafnarfjörður, 2023-07-05)

#52

Ungmennastarf skiptir máli🙏

Ingunn Sveinsdottir (Reykjavík, 2023-07-05)

#53

Hamarinn is a beautiful place for me and my friends and I know that a lot people here in Hafnarfjordur wants to be in hamarinn this summer

Javier E. Lucena Mathison (Hafnarfjordur , 2023-07-05)

#54

Hamarinn is a beautiful place to be with friends and also to make new friends. Hamarinn is a safe place.

afrika mathison (hafnarfjörđur, 2023-07-05)

#55

Þetta skiptir mig miklu máli.

Ragnhildur Ioana Guðmundsdóttir (Reykjavík , 2023-07-05)

#63

Ég hef öll mín starfsár unnið með ungu fólki og séð og heyrt hvað starfið í Hamrinum hefur gefið mörgum ungmennunum mikið. Þar er hlúð að mörgum og gott að fylgjast með þeirri andlegu og líkamlegu uppbyggingu sem þar fer fram.

Hrafnhildur Blomsterberg (Hafnarfjörður, 2023-07-06)

#68

Ég vil að barnabörnin mín geti notið aðstöðunnar!

Kolbrún kristín Jóhannsdóttir (Kópavogur, 2023-07-06)

#71

We need hamarinn open

Antonella Gómez (Kópavogur , 2023-07-06)

#74

hamarinn is like my second home, it is my workspace, recreation space, to spend time with friends and to clear my mind after a long day of work

Rayan Aboul hosn (Hafnarfjörður , 2023-07-06)

#77

i want hamarinn to be opened

mohammad sami (Reykjavik, 2023-07-06)

#80

Mikilvægt málefni fyrir ungt fólk

Lena Karen Sveinsdóttir (Hafnarfjörður , 2023-07-07)

#82

Ég vil ekki að Hamarinn loki því þar get ég hangið með vinum mínum og átt góða stund með þeim

Karla Martínez (Reykjavik , 2023-07-07)

#84

Hamarinn er svo vel nýttur og gefur manni svo mörg tækifæri sem ungmenni. Mér finnst mjög mikilvægt að Hafnarfjarðarbær endurskoði þessa ákvörðun.

Erika Ólafsdóttir (Hafnarfjörður, 2023-07-09)

#86

Ég er virkt ungmenni sem mætir í Hamarinn til að komast úr raunveruleikanum örlítið og hitta uppáhalds fólkið mitt sem eru starfsmenn Hamarsins

Stefán Torrini (Álftanes, 2023-07-09)

#91

Þetta er mjög mikilvægt starf sem þarf að halda uppi

Helga Margrét Ólafsdottir (Hafnarfjörður, 2023-07-09)

#92

Sonur minn hefur notað þessa þjónustu mikið

Dagný Ásgeirsdóttir (Hafnarfjordur , 2023-07-09)

#96

Unglingur á mínum vegum nýtti þjónustu Hamarsins.

Íris Hjaltalín (Hafnarfjörður , 2023-07-09)

#99

Ég skrifa undir vegna þess hve forvarnarstarf í þágu ungs fólks er mikilvægt og ætti að styrkja frekar en að draga úr því.

Erla María Kristinsdottir (Hafnarfjörður, 2023-07-10)

#100

Svona starf er gríðalegt forvarnarstarf, þessi staður, Hamarinn, er öruggt rými fyrri ungmenni sem tilheyra jaðarstettum hópum sem og flóttakrakka sem eru einangruð og eru ekki í mikilli virkni. Það er algert brot og skaðlegt ungmönnum að minnka opnunartíma og ætti alls ekki að gera! Stjórnvöld ættu að huga betur að þessum hópi og ungmennastarfrsemi í heildina með því að til dæmis setja meira fjármagn en ekki minnka. Þetta er til háborinnar skammar! Koma svo!

Dísa Þórudóttir (Hafnarfjörður, 2023-07-10)

#102

Þetta er enginn sparnaður ef hugsað er til framtíðar

Sigrún Óskarsdóttir (Garðabær , 2023-07-10)

#106

Af því þetta er mikilvægt starf fyrir ungmenni hvað þá sérstaklega fyrir ungt flóttafólk sem kemur til landsins og hefur ekkert tengslanet á Íslandi og getur þá nýtt sér hamarinn í að eignast vini

Bríet Björg Rúnarsdóttir (Hafnarfjörður , 2023-07-11)

#108

Starfsemi Hamarsins skiptir gríðarlega miklu máli fyrir ungmenni í Hafnarfirði

Margrét Heiða Magnúsdóttir (Álftanes , 2023-07-13)

#109

Vill halda Harinum opnum eins og áður engar skerðingar takk

Linda Birna Sigurðardottir (Hafnarfjörður, 2023-07-13)

#112

Magga es la mejor

Neyemnedal Elbinney (reikiavik, 2023-07-15)

#113

Það skiptir svo miklu máli fyrir ungt fólk að hafa aðgengi að stað þar sem þau geta varið frítíma sínum á uppbyggilegan hátt, fengið stuðning og notið á sama tíma handleiðslu fagmenntaðs fólks á þessum vettvangi.

Friðmey Jónsdóttir (Kópavogur , 2023-07-19)



Greidd auglýsing

Við munum kynna þennan undirskriftalista fyrir 3000 aðilum.

Lærðu meira...