Setjum lög um heimilisofbeldi

Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans

Þessi umræðuþráður hefur verið sjálkrafa búinn til vegna undirskriftarsöfnunar Setjum lög um heimilisofbeldi.


Gestur

#26

2015-09-03 23:55

Það er mjög mikilvægt að lög verði sett um heimilisofbeldi á Íslandi, þ.e. að löggjöfin veiti þolendum - konum og börnum VERND. Að tekið verði á gerendum með viðeigandi aðgerðum - sem stoppa þá í óhæfuverkum!

Gestur

#27

2015-09-06 18:36

Ofbeldi er alltaf rangt - og sú fyrirmynd sem börnin fá frá fullorðnum skiptir máli - sérstaklega sú fyrirmynd að yfirvöld samþykkja ekki að ofbeldi sé beitt.
Gefum góða fyrirmynd og setjum þau lög sem þarf til að hægt sé að grípa inní og stoppa heimilisofbeldi.

Gestur

#28

2015-09-07 23:48

Lífsnauðsynlegt að lög verndi þolendur


Gestur

#29

2015-09-30 14:54

Af því ég er á móti HEIMILSOFBELDI. 'Eg er á móti ofbeldi.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Gestur

#30

2015-10-01 09:32

Heimilisofbeldi / eða önnur á ekki að líðast

Gestur

#31

2015-10-01 14:17

Heimilisofbeldi á ekki að líðast. Heimilið á að vera griðastaður fyrir einstaklinga , og staður þar sem þeim líður best.

Gestur

#32

2015-10-02 08:07

Hef búið við heimilisofbeldi í 10 ár og þegar ég tók þá ákvörðun að fara frá honum og leitaði hjálpar, þá var engin hjálp að fá frá lögum. Ég þurfti að berjast fyrir mín rétt og barnsins míns til að geta lifað eðlilegu lífi, en hann fékk bara 3 mánaða refsingu... Nú eru nánast 5 ár liðin frá skilnaði og hann heldur áfram áreita, hóta og ekkert hægt að gera í því...!!!!!!   Þetta er ekki réttlæti 


Gestur

#33

2015-10-14 17:16

Hef lent í að lögreglan ekki trúði mér, lengi! keyrðu manninn heim eða i bæinn til að forða honum frá mér! .. Og líka sagði 1 lögreglumaðurinn að ég vildi láta berja mig! En svo byrjaði 1nýr ungur maður þar og hann trúði mér, ég þakka honum fyrir að þetta ekki endaði ekki verr en það gerði!

Gestur

#34

2015-10-17 01:41

Because of my job

Gestur

#35

2015-10-28 23:03

Við erium jöfn i öllu

Gestur

#36 Re:

2015-10-30 00:54

#2: -  

 Móðir mín átti í stormasömu hjónabandi sem kostuðu nokkrar ferðir fyrir hana á sjúkrahús en faðir minn var iðulega sendur á Klepp.  Eftir að faðir minn fyrirfór sér 1978 og við komumst öll á rétt ról þá tók móðir mín þátt í uppbyggingu kvennaathvarfsins ásamt öðrum fleiri baráttukonum. Ég hef því alltaf borið hlýjar kveðjur til þeirra. 


Gestur

#37

2015-11-07 19:27

Já, setjum lög á heimilisofbeldi............................

Gestur

#38

2015-11-12 17:38

Nauðsynlegt að skrifa undir þetta.

Gestur

#39

2015-12-17 18:43

Nauðsynleg aðgerð og þótt fyrr hefði verið

Gestur

#40

2015-12-17 22:00

Það er ekki í lagi að níðast á konum og sleppa við það.

Gestur

#41

2015-12-18 17:17

Löngu tímabært !

Gestur

#42

2015-12-23 06:53

Það mætti einnig koma því inn í lög að foreldrar sem hafa forræðið en virða ekki rétt f.v. maka til samskipta missi forræðið við ítrékuð brot. Þetta er mjög alvarlegt ástand hérlendis vegna þessa.

Gestur

#43

2016-04-04 13:06

Mörgu mà betra um bæta. Nauđsinlegt framtak.
Öskubuska

#44 Setjum lög um heimilisofbeldi

2016-04-04 17:21

Bráðnauðsynlegt!

Móðir mín og ég urðum að flýja land (Ísland) þegar ég var 8 ára útaf drykkju og ofbeldi frá föður mínum.

Lögreglan gat ekkert gert og henni mömmu var sagt að best væri til að halda okkur á lífi væri að flytja frá landi. 

Engin á að þurfa ganga i gegnum það sem við þurftum að gera.

lögreglan hringdu i okkur i hvert skipti sem pabbi fór i útrikisflug til þess að láta okkur vita að han væri að leita af okkur.

Hræðslan sem ég ólst um með var öskup & engin á að þurfa alast upp við svona lagað.