Stöðvum fyrirhugaða lokun á Vin

Athugasemdir

#806

þetta algjörlega óskiljanleg og siðlaus ákvörðun.... þess vegna skrifa ég undir!

Stella Önnud Sigurgeirs (reykjavík, 2022-12-09)

#807

ofbýður mannvonskan.

Eygló Magnúsdóttir (Reykjavík, 2022-12-09)

#812

Eina athvart og von svo margra

Hronn Gudmundsdottir (Hafnarfjörður, 2022-12-09)

#819

Ef skilningurinn er aðeins peningar þá er hér verið að spara eyrinn og kasta krónunni. Mannlegi þátturinn ristir hinsvegar mikið dýpra.

Anna Lára Friðriksdóttir (Álftanes, 2022-12-09)

#823

Vin er mikilvæg starfsemi sem má ekki fara, sá það skýrt hvað þetta er mikilvægt og yndislegt starf þegar ég var þarna sem sjálfboðaliði.

Þóra Katrín Önnudóttir (Reykjavík , 2022-12-09)

#827

Þetta Hús verður bara hreinlega að vera opið, það er ekkert grín þegar að einsemdin tekur yfir.Þarna hafa misjafnlega veikir einstaklingar náð tengslum við aðra með sambærilega lífsreynslu og hafa gert í Áratugi.Svona hugmyndir eru til þess gerðar að kippa öryggi fólks sem að háir sína glímu frá morgni til kvölds í burtu

Sigurður Fáfnir (Reykjavík, 2022-12-09)

#835

Þetta er eina sú versta hugmynd sem hefur komið upp á Íslandi á síðustu árum. Hvað með að tala við fólkið sem notar þjónustuna og leyfa rödd þeirra að heyrast og hvað þeim finnst vera best fyrir sig!!?

Ásta Gunnarsdóttir (Kópavogur, 2022-12-09)

#841

Það eru mannslíf í húfi og við eigum að vernda okkar veikustu hópa.

Árni Geir Geirsson (Reykjavík , 2022-12-09)

#849

Ég skrifa undir þar sem fólk með geðraskanir þarf að eiga sér athvarf meðal vina. Mér sýnist að hópur fólks hafi fest rætur þarna og getur sótt í þessa vin til þess að sjá fram úr deginum. Fyrst starfsemin er til og ber árangur það í bættri líðan skjólstæðinga þá er svo nauðsynlegt að hlúa að því.

Gudridur Ragnarsdottir (Reykjavik, 2022-12-09)

#851

Ég skrifa undir vegna þess að ég hef unnið, með geðfötluðum, í meir en 3 ár á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Ég hef séð hversu gríðarlega mikilvægu hlutverki Vin gegnir í lífi margra. Reykjavíkurborg er að brjóta loforð um að skerða ekki velferðarþjónustu og það er að koma niður á viðkvæmum hópi fólks sem býr við mikla félagslega einangrun. Það er skömm að því að rétt um ári eftir að Reykjvíkurborg tekur við rekstri Vinjar með loforðum að efla starfið sé einfaldlega skellt í lás.

Karól Kvaran (Reykjavík, 2022-12-09)

#863

Jákvæð félagsleg áhrif þessa verkefnis eru það mikil, að það verður ekki samfélagslegur sparnaður af þessum fyrirætlunum þegar upp verður staðið. Gerum vel við fólk sem þarf á aðstoð að halda.

Jón Jónsson (Hólmavík, 2022-12-09)

#876

Steinar Jónsson

Steinar Jonsson (Kópavogur , 2022-12-09)

#877

Það er fáránleg ákvörðun að loka Vin. Hugsið aðeins áður en þið framkvæmið.

Aldís Ásgeirsdóttir (Hafnarfjörður, 2022-12-09)

#878

Það er hræðilegt að loka þessu. Það er alltaf og endalaust ráðist á þá sem minnst mega sín

Þorgerður Elíasdóttir (Grindavík , 2022-12-09)

#879

Mótmæli endalausum árásum á veikasta hópinn, sem á erfitt uppdráttar vegna sjúkdóma og fordóma.

Hafdís Gunnarsdóttir (Hólmavík , 2022-12-09)

#884

Tek undir orð Melkorku.

Sveinn Eggertsson (Reykjavík, 2022-12-09)

#888

Ógeðsleg þessi græðgi sem er á bakvið Þessa ákvörðun.

Ingibjörg Sigursteinsdóttir (Reykjanesbær , 2022-12-09)

#894

Vin er oft eini staðurinn til að hitta aðra og rjúfa einangrun. Þekki Vin af eigin raun og veit hversu mikilvægt starf fer þar fram!

Ása Björk Snorradóttir (221 Hafnarfjörður, 2022-12-09)

#900

Hef unnið à vinnustað þar sem m.a var verið að þjónusta fólk með geðraskanir og hef einnig farið í heimsókn og kynnst starfseminni. Veit því hversu yndislegur og mikilvægur þessi staður er fyrir marga. Úrræði og þjónusta sem frekar þarf að styrkja og efla.

Jenný Lind Óskarsdóttir (Hafnarfjörður, 2022-12-09)

#901

Þetta er mannvonska.

Guðríður Þorleifsdóttir (Garðabæ, 2022-12-09)

#902

Ég skirfa undir því mér hefur þótt vænt um þessa starfsemi OG í Reykjavík eiga meðlimir jarðarhópa að finna öryggt skjól

Björn Bergsson (Reykjavík, 2022-12-09)

#930

Mér þykir mikil mannvonska að loka Vin.

EsterJulia Olgeirs (Viken, 2022-12-09)

#932

Hef unnið mikið með þessum hóp og tel algjörlega nauðsynlegt að það séu til athvörf og öryggir staðir fyrir þau. Nú þegar er mjög lítið um úrræði og algjör fásinna að ætla að gera úrræðin ennþá færri.

Hera Björg J Karenardóttir (Reykjavík, 2022-12-09)

#946

Það er nauðsynlegt að hald Vin opnu.

Erla Haraldsdottir (Reykjavik, 2022-12-09)

#949

Þetta er heimskulegasta hugmynd sem ég hef heyrt!

Hilmar Hallbjörnsson (Kópavogur, 2022-12-09)

#975

Það eru hræðileg mistök að loka Vin og taka burt þetta eina úrræði margra gegn einsemdinni.

Jóhanna María Sigurjónsdóttir (Reykjavík, 2022-12-09)

#985

Þetta er svo ofboðslega lágkúrulegt.

Kristrún Árný Sigurðardóttir (Seltjarnarnesi , 2022-12-09)

#988

Mér finnst ráðist harkalega á minnimáttar!

Sigrún Gunnarsdóttir (Reykjavík, 2022-12-09)

#993

Þetta er mikilvægt athvarf fyrir á sem minna mega sín.

Valdis Jonsdottir (Reykjavik, 2022-12-09)



Greidd auglýsing

Við munum kynna þennan undirskriftalista fyrir 3000 aðilum.

Lærðu meira...