Spegill á gatnamót Aðalgötu/Ólafsvegar/Ægisbyggðar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er ekki viðunandi að það taki lengri tíma en þann sem hefur núna liðið að fá spegil á þetta stórhættulega horn þar sem aukin umferð hefur orðið með tilkomu Héðinsfjarðargangna, þetta er nógu slæmt á sumrin en hvernig verður það í vetur þegar snjóruðningar byrgja sýn ökumanna og hálka minnkar bremsuvegalengd.

Við skorum á Gunnar I. Birgisson og hans undirfólk í Fjallabyggð að verða strax við ósk okkar um umferðarspegil á horn gatnamótin þar sem Aðalgata tengir saman Ólafsveg og Ægisbyggð, sleppum öllu nefndarveseni og kaupum spegil strax!

''Einn spegill eða mörg mannslíf?....''


Áhugafólk um spegla og mannslíf    Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans