Nýtum refsirammann til fulls gegn ölvunarakstri

https://d22r54gnmuhwmk.cloudfront.net/photos/9/dg/gj/GvDgGjGUzwXpDeG-556x313-cropped.jpg

Nýleg umfjöllun í Kastljósi um ölvunarakstur og manndráp af gáleysi hefur vakið upp spurningar hvort ekki sé kominn tími til að nýta refsirammann til fulls við ölvunarakstri.  Víðsvegar í samfélaginu er verið að vinna þarft forvarnarstarf en til að fylgja því eftir þarf refsingin að vera skilvirk. Refsiramminn þarf að vera þannig að fólk hugsar sig tvisvar um áður en það sest drukkið undir stýri. Fækkum dauðagildrum í umferðinni og sýnum samstöðu.

Þú kvittar undir áskorunina hér fyrir neðan. Mikilvægt að kennitala fylgi til þess að undirskriftin sé marktæk!

Áskorunin verður afhent dómsmálaráðuneytinu og fulltrúum héraðsdómstóla á Íslandi.