Hvetjum stjórnvöld til að falla frá niðurskurði til vísinda


Gestur

/ #5

2013-12-03 14:11

Við getum auðveldlega verið í fremstu röð á sviði vísinda miðað við hvernig okkar samfélag er upp byggt, sterkir innviðir og mikill mannauður. Það er skammarlegt hvað við stundum lítið af rannsóknum. Tökum til dæmis Breiðafjörð sem hýsir nú sumargotssíldina, silfur hafsins. Þetta er einstakt svæði á heimsvísu en fáar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á því. Við eigum ekki einu sinni hitastigsmælingar nema í Flatey.
Ég er meistaranemi í líffræði og var fenginn til að kanna áhrif síldardauðans í Kolgrafafirði einungis vegna þess að nemar þiggja engin laun. 30 eða 40 milljónum var hent í að urða dauða síld í fjörum Kolgrafafjarðar til þess að bændur á Eiðum finndu ekki lykt! Framlög til minna rannsókna ná ekki upp í 2 prósent af þessari fjárhæð. Gat fólkið á Eiðum ekki vanist síldarbrælunni eins og þau hafa vanist fjósalyktinni?
Hver veit hvaða vísindarannsóknir verða arðbærar? Allur áburður á túnum okkar er tilkominn vegna þýsks vísindamanns sem vann að því að gera sprengiefni. Hvernig væri búskapur hér á landi ef ekki hefði verið fyrir þann herramann? Þurfum við kannski ekki vísindi á litla Íslandi? Getum við bara þegið af viskubrunnum erlendis frá?
Nú eiga íslenskir vísindamenn þátt í því að endurbæta þá aðferð sem þjóðverjinn Haber fann upp á til áburðarvinnslu og gangi allt eftir getur það haft mikil áhrif á næringarbúskap manna á heimsvísu. Einnig skulum við minnast alls þess fjármagns sem íslensk vísindastörf sækja erlendis frá eins og rektor HÍ benti á í grein sinni um daginn. Það fé fer kannski ekki í réttu vasana.