Áskorun á Reykjavíkurborg vegna frístundar hjá Breiðagerðisskóla
Nú eru 4 vikur liðnar af þessu skólaári og enn hafa mörg börn í 2., 3. og 4. bekk ekki fengið pláss í frístund sökum húsnæðismála.
Foreldrafélag Breiðagerðisskóla skorar á Reykjavíkurborg að endurnýja leigusamning um skátaheimilið án tafar svo frístundastarf komist í eðlilegt horf.
Foreldrafélagið mótmælir hugmyndum um að frístund fyrir 3. og 4. bekk verði færð inn í skólann. Reynslan af því fyrirkomulagi er ekki góð, hvorki fyrir nemendur, kennara eða starfsmenn.
Þær hugmyndir sem Reykjavíkurborg hefur um breytt fyrirkomulag eða aðstöðu fyrir frístundastarf við Breiðagerðisskóla þarf að undirbúa betur og kynna með góðum fyrirvara og í samráði við alla hagsmunaaðila; frístundaheimilið, Breiðagerðisskóla, foreldra og nemendur.
Við undirrituð skorum á Reykjavíkurborg að endurnýja leigusamning um skátaheimilið án tafar svo frístundastarf komist í eðlilegt horf.
Foreldrafélag Breiðagerðisskóla Hafðu samband við höfund undirskriftarlistans
Announcement from the administrator of this websiteWe have closed this petition and we have removed signatories' personal information.European Union's General Data Protection Regulation (GDPR) requires a legitimate reason for storing personal information and that the information be stored for the shortest time possible. |